Uppsetning félags
Upplýsingar á reikningum, bókhaldslykill eftir starfsemi og VSK-skráning.
Á Forsíðu er gátlisti Komdu þér af stað sem fylgir þér í gegnum uppsetninguna. Hakað er við hvert skref um leið og því er lokið.
Upplýsingar um félagið
Stillingum er skipt í flipa. Undir Stillingar → Félagið skráir þú kennitölu, heimilisfang, VSK-númer, símanúmer og netfang, og getur hlaðið upp merki félagsins og valið lit. Merki og litur birtast á reikningum, tilboðum, ítrekunum, launaseðlum og skýrslum, og efst í valmyndinni þegar unnið er í félaginu. Undir Stillingar → Reikningar eru bankareikningur, greiðslufrestur, eindagi, texti neðst á reikningum og texti tölvupósts. Þessar upplýsingar birtast á öllum reikningum, svo þær þurfa að vera réttar áður en fyrsti reikningurinn er gefinn út.
Útgefinn reikningur heldur merkinu og litnum sem voru í gildi þegar hann var gefinn út, svo hann prentast alltaf eins þótt skipt sé um merki síðar.
Bókhaldslykill
Veldu lyklasett og hvort félagið sé á VSK-skrá. Sett eru til fyrir ráðgjöf og þjónustu, einyrkja, verslun, iðnað og verktöku, veitingar, ferðaþjónustu, fasteignafélög, eignarhaldsfélög, húsfélög og almennan rekstur án VSK, auk heildarlykils með öllum lyklum. Lyklarnir fylgja föstum númerabilum (t.d. 1000–1999 tekjur, 7600–7649 viðskiptakröfur, 9300–9349 viðskiptaskuldir) og koma með VSK-kóðum, flokkun í ársreikning og RSK-reit skattframtals. Lyklunum má breyta og bæta við undir Bókhald → Bókhaldslykill; sjá Bókhaldslyklar.
Virðisaukaskattur
Félag utan VSK-skrár fær lyklasett án VSK-lykla; reikningar eru gefnir út án virðisaukaskatts og VSK-skýrslur falla út. Þegar félagið fer á VSK-skrá velur þú Stillingar → Félagið → Virðisaukaskattur → Skrá á VSK-skrá og slærð inn VSK-númer og upphafsdag. Þá bætast útskattur, innskattur, handfærður innskattur, uppgjörsreikningur og VSK-skiptir lyklar við, og VSK-kóðar og RSK-reitir eru settir á. Eldri færslur haldast óbreyttar.
Viðmót
Í hliðarvalmyndinni má velja Einfalt eða Bókari. Einfalda viðmótið felur sérhæfðari valmyndir fyrir þá sem sjá aðeins um reikninga og kvittanir.