Dazio
Hjálp › Bókhald

Bókhaldslyklar, safnreikningar og VSK

Tegund lykla, safnreikningar undirkerfa og merking í VSK-uppgjör.

Undir Bókhald → Bókhaldslykill eru allir lyklar félagsins. Hver lykill hefur tegund (eign, skuld, eigið fé, tekjur, gjöld), sjálfgefinn VSK-kóða og flokkun í ársreikning og RSK-lyklun skattframtals.

Safnreikningar

Lykill getur verið safnreikningur viðskiptakrafna eða viðskiptaskulda. Hægt er að hafa fleiri en einn, t.d. sér safnreikning fyrir tengda aðila eða erlenda viðskiptavini, og hver viðskiptamaður eða lánardrottinn getur haft eigin safnreikning. Hreyfingar á safnreikningum krefjast aðila svo undirkerfi og fjárhagur stemmi; sjá Afstemming undirkerfa.

Ef breyta á safnreikningi lykils sem hefur hreyfingar þarf að staðfesta það, og breytingin er skráð í gagnadagbók.

VSK-uppgjör

Lyklar eru merktir sem útskattur eða innskattur. VSK-skýrsla og VSK-uppgjör ná til allra merktra lykla.

Yfirfærsla við árslokun

Á efnahagslykli má velja Flyst við árslokun á. Þegar árinu er lokað flyst staða lykilsins á valinn lykil með færslu dagsettri 1.1. næsta árs, t.d. „Áhöld og tæki keypt á árinu“ á „Áhöld og tæki“. Lykillinn sem tekur við má ekki sjálfur flytjast áfram, og safnreikningar og rekstrarlyklar flytjast ekki. Stillinguna má líka setja í Excel-sniðmáti bókhaldslykils.

Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi