Dazio
Hjálp › Bókhald

Fylgiskjöl og dagbækur

Bóka staka færslu eða dagbók með mörgum færslum.

Undir Bókhald eru tvær leiðir til að bóka handvirkt:

  • Stök færsla (flýtilykill N F): eitt fylgiskjal með línum í debet og kredit.
  • Ný dagbók (N D): margar færslur slegnar inn í töflu og bókaðar í einu lagi. Dagbókin er vistuð á meðan þú vinnur og er ekki bókuð fyrr en þú velur að bóka hana.

Fylgiskjal verður að stemma, debet jafnt kredit, áður en það er bókað. Hverri línu má gefa VSK-kóða; þá skiptir Dazio fjárhæðinni sjálfkrafa í nettó og virðisaukaskatt.

Í dagbók

  • Upphæð: ein tala á línu – jákvæð er debet, neikvæð (með mínus) er kredit.
  • Mótlykill: ef fylltur út bókast línan líka á mótlykilinn með gagnstæðu formerki, svo ein lína getur verið heilt fylgiskjal, t.d. bankagjöld á móti bankareikningi. Mótlykill getur ekki verið safnreikningur; notaðu þá línu á viðskiptamann eða lánardrottin.
  • Nýtt fylgiskjal: þegar fylgiskjal stemmir fer næsta lína sjálfkrafa í nýtt fylgiskjal.
  • Villur: reitur með villu er merktur rauður, t.d. dagsetning sem er ólík öðrum línum fylgiskjalsins eða lykill sem er ekki til. Haltu músinni yfir reitnum til að sjá skýringuna.
  • Dagsetningar eru slegnar inn sem dd.mm.áááá (líka 5.11.26 eða 051126). Dagatal opnast með tákninu í reitnum eða Alt + ↓.

Excel-sniðmát dagbókar hefur sömu dálka: einn dálk fyrir upphæð með formerki og dálk fyrir mótlykil. Eldri skrár með dálkum fyrir debet og kredit lesast áfram inn.

Viðhengi, t.d. kvittun, má hengja við fylgiskjal. Viðhengið er skráð í gagnadagbók með fingrafari svo ekki sé hægt að skipta því út síðar.

Bókuðu fylgiskjali verður ekki breytt; sjá Leiðrétta bókun.

Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi