Hvað gerist þegar prufutímanum lýkur?
Félagið heldur áfram á þeim pakka sem þú valdir við skráningu. Gögnin eru öll á sínum stað. Ef pakkinn inniheldur ekki einingu sem þú notaðir á prufutímanum eru gögnin úr henni áfram aðgengileg til lestrar.
Get ég flutt gögn úr öðru kerfi?
Já. Viðskiptamenn, lánardrottna, bókhaldslykla og hreyfingar má lesa inn úr Excel með sniðmáti. Beinn innflutningur úr dk, Payday og Business Central er í vinnslu.
Er Dazio rafrænt bókhaldskerfi samkvæmt reglugerð nr. 505/2013?
Kerfið er hannað til að uppfylla lágmarkskröfur reglugerðarinnar og henni fylgir kerfislýsing og yfirlýsing framleiðanda. Bókuð gögn eru varin með gagnadagbók og hægt er að taka út afrit með sannprófunarforriti hvenær sem er.
Get ég boðið bókaranum mínum eða endurskoðanda?
Já, eigandi félags býður notendum með netfangi og velur hlutverk: eigandi, bókari, endurskoðandi, lesaðgangur eða tímaskráning. Notendur kosta ekkert aukalega, nema hjá bókhaldsstofum í áskriftinni Stofa: þar kostar hver notandi stofunnar umfram einn 2.490 kr. á mánuði.
Hvar eru gögnin geymd?
Gögnin eru geymd í gagnaverum innan Evrópska efnahagssvæðisins, aðskilin eftir félögum. Þú getur hvenær sem er sótt fullt afrit af bókhaldi félagsins.
Get ég sagt upp hvenær sem er?
Já, áskriftin er án bindingar og gjaldfærð mánaðarlega. Við uppsögn færðu fullt afrit af bókhaldinu, sem þú þarft að varðveita í sjö ár samkvæmt lögum um bókhald.