Hjálp › Skýrslur og uppgjör
Afstemming undirkerfa
Bera stöðu safnreikninga saman við viðskiptamenn og lánardrottna.
Skýrslan Skýrslur → Afstemming undirkerfa ber stöðu hvers safnreiknings í fjárhag saman við samtölu viðskiptamanna eða lánardrottna sem eru tengdir honum. Hún sýnir líka línur á safnreikningum sem eru án aðila.
Mismunur stafar oftast af handfærðri dagbókarfærslu á safnreikning án aðila. Opnaðu línuna og bættu aðilanum við með leiðréttingarfærslu.
Gott er að fara yfir þessa skýrslu fyrir hvert VSK-uppgjör og við áramót.
Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi