Hjálp › Skýrslur og uppgjör
Áramót og lokun árs
Gátlisti, lokun tímabila og opnunarstöður nýs árs.
Undir Bókhald → Áramót er gátlisti fyrir uppgjör ársins, m.a. afstemming banka og undirkerfa, afskriftir, VSK-uppgjör síðasta tímabils og launauppgjör.
- Kláraðu gátlistann.
- Lokaðu árinu. Rekstrarreikningslyklar eru gerðir upp á móti eigin fé og opnunarstöður efnahagslykla verða til á nýju ári. Lyklar sem stilltir eru á yfirfærslu við árslokun flytjast á sinn lykil með færslu 1.1. næsta árs.
- Lokuð tímabil taka ekki við nýjum færslum. Ef leiðrétta þarf eftir lokun er það gert með færslu á opnu tímabili.
Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi