Hjálp › Fyrstu skrefin
Stofna aðgang og félag
Nýskráning, staðfesting netfangs og fyrsta félagið.
Þú stofnar aðgang á dazio.is með því að velja Prófa frítt. Aðgangurinn er þinn persónulegi notandi; bókhaldið er geymt á félaginu og þú getur haft aðgang að fleiri en einu félagi.
- Sláðu inn nafn, netfang og lykilorð (minnst 10 stafir) og veldu Stofna aðgang.
- Opnaðu staðfestingarpóstinn frá Dazio og smelltu á Staðfesta netfang. Finnirðu hann ekki skaltu líta í ruslpóstinn.
- Skráðu þig inn. Ef þú tengist engu félagi birtist Stofna félag: sláðu inn kennitölu félagsins, heiti, starfsemi og þann pakka sem á að gilda eftir prufutímann.
Kennitalan er sannprófuð með vartölu og hvert félag getur aðeins verið skráð einu sinni í Dazio. Ef félagið er þegar skráð skaltu biðja eiganda þess um að bjóða þér.
Prufutíminn er 30 dagar og allar einingar eru opnar á meðan. Þegar honum lýkur heldur félagið áfram á völdum pakka og öll gögn eru á sínum stað.
Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi