Hjálp › Aðgangur, öryggi og gögn
Gagnadagbók og rafrænt bókhald
Hvernig Dazio tryggir að bókhaldi sé ekki breytt eftir á.
Allar bókanir, útgefnir reikningar, viðhengi og breytingar á forsendum eru skráðar í gagnadagbók undir Bókhald → Gagnadagbók og öryggi. Hver færsla fær fingrafar (SHA-256) sem byggir á fingrafari næstu færslu á undan, svo ef nokkru er breytt rofnar keðjan.
Festa keðju býr til stuttan texta með númeri og fingrafari síðustu færslu sem þú getur geymt utan kerfisins, t.d. í tölvupósti. Síðar má sanna að bókhaldið hafi ekki breyst frá þeim tíma.
Dazio er hannað eftir reglugerð nr. 505/2013 um rafrænt bókhald; kerfislýsing og yfirlýsing framleiðanda liggja fyrir.
Dazio er í lokaðri forútgáfu. Viltu prófa á þínu félagi?Óska eftir aðgangi