Afrit og sannprófun
Sækja fullt afrit af bókhaldinu og sannprófa það án Dazio.
Taka afrit núna undir Bókhald → Gagnadagbók og öryggi sækir ZIP-skrá með öllu bókhaldi félagsins, viðhengjum og gagnadagbók, ásamt sjálfstæðu sannprófunarforriti.
Sannprófunarforritið opnast í vafra án nettengingar og án aðgangs að Dazio. Það sannprófar keðju gagnadagbókar, fylgiskjöl, reikninga og viðhengi, og sýnir dagbók, prófjöfnuð og reikninga. Endurskoðandi eða skattyfirvöld geta því skoðað bókhaldið án þess að fá aðgang að kerfinu.
Þegar viðhengi félagsins eru orðin mikil er afritið tekið í hlutum: bókhaldið án viðhengja og svo viðhengi hvers árs fyrir sig. Hver hluti inniheldur allt bókhaldið og sannprófunarforritið, sem sannprófar viðhengi þess árs.
Bókhaldsgögn þarf að varðveita í sjö ár. Taktu afrit reglulega og alltaf ef áskrift lýkur.